Réttir Food Festival er haldið í fyrsta skipti á Norðurlandi vestra dagana 16. – 25. ágúst.
Veitingahúsaeigendur og framleiðendur standa að þessari flottu matarhátíð.
Þeir ætla að bjóða gestum sínum upp á skemmtilega upplifun og fræðslu um mat og menningu á svæðinu. Það verða fjölmargar uppákomur þessa tíu daga, allt frá Laugarbakka í Miðfirði, út í Fljót í Skagafirði.
Vinsamlegast gangið frá bókun á viðburði hér á heimasíðunni
Fyrir frekari upplýsingar eða aðstoð er hægt að senda okkur tölvupóst á [email protected].